Peysufatadagur

Nemendur á 2. ári taka þátt í peysufatadegi Kvennaskólans í Reykjavík. Við hvetjum fjölskyldur nemenda, vini og velunnara skólans til að gleðjast með okkur í miðborginni þennan dag. 

Dagskráin er eftirfarandi: 

kl. 10:00 Ingólfstorg 

kl. 11:00 Kvennaskólinn (portið í Miðbæjarskólanum) 

kl. 12:40 Hjúkrunarheimilið Grund (fyrir aftan bygginguna) 

kl. 13:50 Þjóðminjasafnið 

 

 

 

 

Hér má sjá upplýsingapóst sem Margrét Helga frönskukennari og umsjónarkona peysufatadagsins sendi til nemenda og forráðamanna þann 20. janúar 2026. 

Peysufatadagurinn – sagan í stuttu máli
Þegar Kvennaskólinn var stofnaður árið 1874 var venjan að nemendur væru í íslenskum búningi í skólanum. Með tímanum breyttist það eins og annað og þegar kom fram um 1920 gengu aðeins sumar stúlknanna í slíkum búningi í skólanum. Vorið 1921 ákváðu nemendur skólans að koma á peysufötum til skólans til hátíðabrigða og gera sér dagamun á eftir. Síðan þá hefur peysufatadagurinn jafnan verið endurtekinn einu sinni á skólaári með vaxandi viðhöfn. Þessi hefð er því orðin rúmlega hundrað ára gömul og þykir ómissandi liður í skólastarfinu.

Hér má sjá frétt frá peysufatadeginum sem haldinn var í apríl 2025.