Öryggisnefnd

Öryggisnefnd Kvennaskólans í Reykjavík

Í öryggisnefnd Kvennaskólans eru tveir öryggisverðir tilnefndir af hálfu atvinnurekanda til tveggja ára og tveir öryggistrúnaðarmenn kosnir af starfsfólki, einnig til tveggja ára í senn.

Hlutverk öryggisnefndar er að skipuleggja aðgerðir varðandi aðbúnað, hollustuhætti og öryggi innan vinnustaðarins, annast fræðslu starfsfólks um þessi efni og hafa eftirlit með því að ráðstafanir komi að tilætluðum notum.

Öryggisnefnd Kvennaskólans skipa:

Kolfinna Jóhannesdóttir öryggisvörður
Ásdís Arnalds öryggisvörður
Laufey Ásgrímsdóttir öryggistrúnaðarmaður
Ólafur Óskar Óskarsson öryggistrúnaðarmaður

Öryggisnefnd Kvennaskólans starfar samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 920/2006 um skipulag og framkvæmd vinnuverndarstarfs á vinnustöðum.