Skólahjúkrunarfræðingur

Boðið er uppá þjónustu skólahjúkrunarfræðinga í öllum framhaldsskólum á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt samningi milli heilsugæslu og framhaldsskóla.
Þjónustan er kostuð af tímabundnu fjármagni til heilbrigðisstofnana til að auka geðheilbrigðisþjónustu við framhaldsskólanema.
Þjónustan er hugsuð sem viðbót við stuðningsþjónustu sem nú þegar er til boða í skólunum. 


Ásdís er með viðtalsherbergi á 2. hæð í Miðbæjarskólanum. 

Skólahjúkrunarfræðingur: 

  • Veitir viðtöl og ráðleggingar um heilbrigði og líðan

  • Leiðbeinir hvert skal leita í heilbrigðiskerfinu og veitir ráðgjöf varðandi heilbrigðisþjónustu sem er í boði

  • Einstaklingsfræðsla um næringu, svefn, kynheilbrigði og hreyfingu.

  • Metur veikindi og meiðsli

  • Hægt er að bóka viðtalstíma á INNU

Ekki hika við að hafa samband - allar spurningar eiga rétt á sér!