Áfangar frá öðrum skólum

Nemandi sem stundað hefur nám í öðrum framhaldsskóla sem starfar samkvæmt aðalnámskrá framhaldsskóla á rétt á því að fá nám, sem hann hefur lokið með fullnægjandi árangri, metið til eininga á sama hæfniþrepi í Kvennaskólanum enda falli námið að námskrá og námsbrautarlýsingum hans.

Á sama hátt getur nemandi sem skiptir um námsbraut innan Kvennaskólans fengið það nám sem hann hefur lokið með fullnægjandi hætti metið ýmist sem kjarna eða val. Það kemur fram á stúdentsskírteini ef áfangar eru metnir úr öðrum skólum. 

Nemendur sem óska eftir mati þurfa að hafa samband við námstjóra eða aðstoðarskólameistara. 

Gjaldskrá skólans, sjá hér.
Mat á einföldu námi úr öðrum skólum kr. 2000
Mat á fyrra námi (færsla á milli skóla) kr. 10000