Mat á landsliðsverkefni í íþróttum

Afreksíþróttafólk getur óskað eftir að fá metna eina námseiningu á hverju skólaári eða þrjár að hámarki á námsferlinum fyrir þátttöku og æfingar með landsliðum.

Afreksíþróttafólk telst það sem valið hefur verið í unglingalandslið eða landslið í íþróttagrein innan ÍSÍ eða hefur verið valið til þátttöku og/eða undirbúnings fyrir Norðurlandamót, Evrópumeistaramót, heimsmeistaramót, Ólympíuleika eða önnur sambærileg mót í sinni grein innan sérsambanda ÍSÍ. Þegar staðfesting á fyrirhugaðri þátttöku nemandans liggur fyrir frá sérsambandi / landsliðsþjálfara / landsliðsnefnd skal leggja fram staðfesta áætlun um þátttöku í verkefnum fyrir upphaf skólaárs eða námsannar.

Umsókn skal skila til fagstjóra í íþróttum og/eða námstjóra.