Notkun gervigreindar - hvað má og hvað má ekki?
- Nemendum ber ávallt að fylgja fyrirmælum kennara um leyfileg hjálpargögn, þar á meðal hvort og með hvaða hætti heimilt sé að nota gervigreind við verkefnavinnu og/eða í prófi.
- Sömu reglur gilda um gervigreind og önnur hjálpargögn. Ef nemandi er staðinn að notkun óleyfilegra gagna eða tækni, þar með talið gervigreind, verður úrlausn hans ekki metin og telst hann fallinn í viðkomandi verkefni og/eða prófi.
- Gervigreind getur þó nýst sem stuðningur í námi ("námsfélagi"), til dæmis til að ræða námsefnið, fá endurgjöf eða finna heimildir. Mikilvægt er þó að sannreyna allar heimildir og fara gagnrýnið yfir svör gervigreindarinnar, þar sem ekki er hægt að treysta því að upplýsingar hennar séu ávallt réttar eða áreiðanlegar.
- Nemendur skulu undantekningarlaust ráðfæra sig við kennara um hvort heimilt sé að nota gervigreind í verkefnum og/eða prófum og þá með hvaða hætti notkun hennar er leyfð.
Meginregla skólans er að nemendur beri ábyrgð á námi sínu og hafi vönduð vinnubrögð, heiðarleika og fagmennsku að leiðarljósi.
Í skólanum gilda siðareglur og reglur um heiðarleg vinnubrögð í námi.
Hér má sjá prófa- og verkefnareglur skólans.