Innritun

Kvennaskólinn notar sameiginlegt innritunarkerfi fyrir framhaldsskóla sem ráðuneyti rekur. Skólinn innritar nemendur að vori. Samkvæmt reglugerð nr. 204/2012 á að leggja eftirfarandi forgangsröðun umsókna til grundvallar við innritun:

  • Nemendur sem flytjast milli anna eða skólaára í núverandi skóla að meðtöldum þeim nemendum yngri en 18 ára með ófullnægjandi námsárangur sem hafa haldið skólareglur að öðru leyti
  • Nemendur á starfsbraut fatlaðra*
  • Nýnemar sem útskrifast úr grunnskóla á næstliðnu vori fyrir upphaf skólaárs
  • Umsækjendur yngri en 18 ára sem eru að sækja um í fyrsta sinn
  • Umsækjendur yngri en 18 ára sem eru að sækja um eftir hlé á námi
  • Umsækjendur yngri en 18 ára sem flytjast milli framhaldsskóla
  • Aðrir umsækjendur yngri en 25 ára sem uppfylla skilyrði
  • Aðrir umsækjendur um dagskóla
  • Umsækjendur um fjarnám eða kvöldskóla*

*Kvennaskólinn starfrækir hvorki starfsbraut fatlaðra, fjarnám né kvöldskóla.

Þeir sem eru yngri en 18 ára njóta forgangs fram yfir þá sem eldri eru og þeir sem hafa hætt námi við skólann eða gert hlé á námi sínu njóta forgangs að lausum plássum í efri bekkjum skólans.