Jafnréttisstefna

Markmið með jafnréttisstefnu Kvennaskólans í Reykjavík er að stuðla að jafnrétti á öllum sviðum og leggja áherslu á mikilvægi þess að allt starfsfólk fái notið hæfileika sinna til fulls. Halda skal sem jöfnustu hlutfalli kvenna og karla í öllu starfi innan skólans eftir því sem frekast er kostur og gæta sérstaklega að stöðu fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Í stefnumótun og ákvarðanatöku á öllum sviðum skólans skal unnið með kynjasamþættingu* í huga. Hvers kyns mismunun sem byggð er á aldri, búsetu, fötlun, kyni, kynhneigð, kynvitund, lífsskoðunum, menningu, stétt, trúarbrögðum eða þjóðerni er óheimil, í hvaða formi sem hún kann að birtast og skal vinna markvisst gegn slíku. Kynferðisleg áreitni** og kynbundin áreitni*** er ekki liðin. Jafnréttisstefnu Kvennaskólans í Reykjavík er fylgt með jafnréttisáætlun.

*Kynjasamþætting snýst um að gæta að hvaða áhrif stefnumótun eða ákvarðanataka hefur á ólík kyn innan stofnunarinnar.

**Kynferðisleg áreitni er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður. Kynferðisleg áreitni getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn.

***Kynbundin áreitni er hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður.

Jafnréttisáætlun
Jafnréttisáætlun skólans er verkfæri til þess að útfæra jafnréttisstefnu hans með markvissum hætti. Jafnréttisáætlunin er tvískipt. Fyrri hlutinn fjallar um Kvennaskólann í Reykjavík almennt sem vinnustað starfsfólks en sá seinni fjallar um skólann sem menntastofnun.

Jafnréttisnefnd
Innan Kvennaskólans í Reykjavík skal starfa jafnréttisnefnd sem er skipuð til tveggja ára í senn. Í henni skulu sitja eigi færri en þrír einstaklingar og einn þeirra skal leiða nefndina og vera jafnréttisfulltrúi skólans. Jafnréttisnefnd á að hafa það hlutverk að fylgjast með stöðu jafnréttismála í skólanum. Hún ber ábyrgð á að markvisst sé unnið eftir jafnréttisstefnu skólans.

Jafnréttisnefnd mótar stefnu og áætlanir skólans í jafnréttismálum í samvinnu við jafnréttisteymi nemendafélagsins þar sem það á við. Jafnréttisnefnd sér um að endurskoða jafnréttisstefnu skólans. Jafnréttisfulltrúi kallar jafnréttisnefnd starfsfólks á fundi og sér um samráð hennar við jafnréttisteymi nemendafélagsins og heldur samráðsfund að minnsta kosti einu sinni á önn. Jafnréttisfulltrúi hefur einnig það hlutverk að vera ráðgefandi fyrir jafnréttisteymi nemendafélagsins og starfsfólk sem leitar til hans.

Kvennaskólinn í Reykjavík sem vinnustaður
Þættir sem litið er til eru: ráðningar, ráðningarkjör, starfsaðstæður, starfsframi, verkefni, ábyrgð, starfsþjálfun, endurmenntun og símenntun, einelti og kynferðisleg áreitni.

Ráðningar
Hafa skal öll kyn í huga þegar störf eru auglýst og leitast við að halda hlutfalli karla og kvenna eins jöfnu og frekast er unnt. Skal sérstaklega hvetja þá sem tilheyra því kyni sem hallar á til þess að sækja um störf sbr. 19. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og gæta skal sérstaklega að stöðu fólks með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá. Gæta skal jafnréttissjónarmiða til jafns við önnur sjónarmið við ráðningar í skólanum.

Ráðningakjör
Þess skal gætt að starfsfólki séu greidd rétt laun og að það njóti sömu kjara fyrir sambærileg störf. Þetta á einnig við um lífeyri, orlof og veikindarétt. Öll skulu hafa jafna möguleika á launuðum aukastörfum innan skólans. Stjórnendur skólans fara yfir launakjör með starfsfólki í starfsviðtölum.

Starfsaðstæður
Leitast skal við að gera starfsfólki kleift að samræma starfsskyldur sínar og skyldur gagnvart fjölskyldu með sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri vinnuhagræðingu, s.s. vegna óska um töku fæðingar- og foreldraorlofs eftir því sem starfstími og skipulag kennslu leyfir. Skólastjórnendur hvetji starfsfólk til að nýta sér fæðingarorlof. Eins eru foreldrar hvattir til að skipta með sér heimaveru vegna veikinda barna sinna. Ekki skal líta á það sem mismunun að tekið sé tillit til þungunar eða barnsburðar.

Starfsframi, verkefni og ábyrgð
Öll kyn skulu hafa jafna möguleika á starfsframa innan skólans. Gæta skal jafnréttissjónarmiða við skiptingu verkefna og deilingu ábyrgðar meðal starfsmanna. Við skipan í nefndir og ráð skal gæta þess að kynjahlutfall sé sem jafnast.

Starfsþjálfun, endurmenntun og símenntun
Öll skulu hafa jafna möguleika á að þróa sig áfram í starfi. Gæta skal jafnréttissjónarmiða þegar starfsfólk sækist eftir að bæta sig í starfi.

Einelti og kynferðisleg áreitni
Auka skal fræðslu um einelti, kynbundna- og kynferðislega áreitni til að stuðla að því að allt starfsfólk sé meðvitað um slík málefni og geti greint slík mál og brugðist við þeim. Þegar slík mál koma upp skulu þau fara í verkferla sem aðgengilegir eru á heimasíðu og innraneti skólans.

Kvennaskólinn í Reykjavík sem menntastofnun
Þættir sem litið er til eru; jafnrétti í skólastarfi, fræðsla, einelti og kynferðisleg áreitni.

Jafnrétti í skólastarfi
Nauðsynlegt er að starfsfólk gefi gott fordæmi, að það sé góðar fyrirmyndir og stuðli að jafnrétti í orði og verki. Í skólastofunni er mikilvægt að kennari leggi fyrir fjölbreyttar gerðir verkefna sem höfði til mismunandi nemendahópa. Kennarinn verður að vera meðvitaður um þann fjölbreytileika sem kann að vera til staðar í nemendahópnum og að allir séu virkjaðir í náminu. Hvetja skal nemendur til dáða á sviðum sem eru utan hefðbundinna kynhlutverka.
Skólinn á að vera vettvangur fyrir nemendur til þess að prófa sig áfram á ólíkum sviðum. Í námsgreinum þar sem kynjunum gengur almennt misvel að tileinka sér námsefnið skal markvisst reynt að nota fjölbreyttar kennsluaðferðir og efni til að hvetja alla nemendur til dáða. Kennarar bera ábyrgð á að nota námsefni sem er samið af og fjallar um einstaklinga með fjölbreytilegan bakgrunn og endurspegla fjölbreytileika nemendahópsins. Ekki skal ganga út frá því að allir nemendur séu gagnkynhneigðir eða hafi allir kynvitund sem fellur að tvískiptingunni í karla og konur. Kennarar skulu vera vakandi fyrir því hvort halli á nemendur út frá kyni varðandi framkomu í þeirra garð, s.s. hvort stúlkur og piltar séu spurð álíka oft og þeim kennt af jafnmikilli dýpt og væntingum um að þau geti tileinkað sér efnið óháð kyni. Starfsfólk skal reglulega fá fræðslufundi og námskeið sem snerta jafnréttismál.

Fræðsla fyrir nemendur
Nemendur skulu fá fræðslu um jafnrétti kynjanna. Í þeirri fræðslu skal leggja áherslu á styrkleika, skyldur og réttindi allra nemenda. Hluti af jafnréttisfræðslu skólans á að taka fyrir mismunun byggðri á aldri, búsetu, fötlun, kyni, kynhneigð, kynvitund, lífsskoðunum, menningu, stétt, trúarbrögðum eða þjóðerni. Nemendur fá þjálfun í að vinna gegn hvers konar misrétti.

Fjallað er um jafnrétti í ýmsum námsáföngum svo sem félagsfræði, uppeldisfræði, sögu, lífsleikni, líffræði og sálfræði. Umræða um þessi mál kemur einnig við sögu í ýmsum öðrum greinum svo sem bókmenntaumræðum og lesefni tungumála

Einelti og kynferðisleg áreitni
Auka skal fræðslu um einelti, kynbundna og kynferðislega áreitni til að stuðla að því að allir nemendur séu meðvitaðir um slík málefni og geti greint slík mál og brugðist við þeim. Þegar slík mál koma upp skulu þau fara í verkferla sem aðgengilegir eru á heimasíðu og innraneti skólans.



Samþykkt á kennarafundi 30. maí 2022.