Grunnþættir og lykilhæfni

Unnið er með læsi, tjáningu og samskipti um tölur og upplýsingar

  • með því að læra að vinna með upplýsingar úr ólíkum miðlum og gera grein fyrir þeim
  • með því að læra að vinna með, túlka og miðla tölulegum upplýsingum
  • með því þjálfa gagnrýna hugsun gagnvart tölulegum og upplýsingatengdum gögnum

Unnið er með læsi, tjáningu og samskipti á erlendum tungumálum

  • með því að læra að vinna með fjölbreyttar textagerðir og upplýsingar úr ólíkum miðlum
  • með munnlegri og skriflegri þjálfun á erlendum tungumálum
  • með því að þjálfa menningarlæsi og samskiptahæfni
  • með því að auka orðaforða og hugtakaskilning á erlendum tungumálum

Unnið með læsi, tjáningu og samskipti á íslensku

  • með því að læra að vinna með fjölbreyttar textagerðir og upplýsingar úr ólíkum miðlum
  • með áherslu á fræðilegan orðaforða og hugtakaskilning
  • með því að þjálfa markvisst tjáningu á íslensku í ræðu og riti
  • með virkum umræðum

Unnið er með heilbrigði og velferð

  • með áherslu á vellíðan nemenda
  • með áherslu á jákvæð og heilbrigð samskipti
  • með fræðslu um heilsu og umhverfi með virkum umræðum
  • með því að gera nemendur meðvitaða um ábyrgð á eigin heilsu
  • með því að styrkja sjálfsmynd nemenda og efla sjálfstraust
  • með virkri EKKO-áætlun
  • með margvíslegu forvarnarstarfi
  • með áherslu á góðan skólabrag

Unnið er með skapandi hugsun og hagnýtingu þekkingar

  • með því að vinna verkefni á fjölbreyttan hátt
  • með skapandi úrlausnum
  • með því að ýta undir frumkvæði
  • með margvíslegu félagsstarfi, t.a.m. við útgáfu skólablaðs og uppsetningu leiksýningar

Unnið er með lýðræði og mannréttindi

  • með því að vinna verkefni sem tengjast samfélagsmálum
  • með áherslu á fjölbreytileika og virðingu
  • með fræðslu um menningarlæsi og fjölmenningu
  • með umfjöllun um lýðræði og mannréttindi
  • með því að stunda lýðræðisleg vinnubrögð
  • með því að vinna gegn fordómum

Unnið er með jafnrétti

  • með því að stuðla að jafnrétti á öllum sviðum
  • með því að vinna gegn mismunun
  • með því að stuðla að jafnræði
  • með virku jafnréttisteymi og jafnréttisnefnd

Unnið er með námshæfni

  • með því að ýta undir sjálfstæð vinnubrögð og ábyrgð á eigin námi
  • með því að þjálfa nemendur í samvinnu
  • með því að þjálfa gagnrýna hugsun
  • með því að beita fjölbreyttum námsaðferðum
  • með því að þjálfa námstækni og margvísleg vinnubrögð
  • með því að vinna með tækni í upplýsingaleit og við úrvinnslu

Unnið er með menntun til sjálfbærni

  • með umfjöllun um loftslags- og umhverfismál
  • með því að gera nemendur meðvitaða um eigin neyslu og neysluvenjur
  • með því að stuðla að umhverfisábyrgð