Skipulag kennslu vikuna 7. - 11. september

Mánudaginn 7. september byrjar 3. bekkur í staðnámi í skólanum. Skólahaldið tekur mið af sóttvarnareglum og því er skólanum skipt upp í nokkur sóttvarnarhólf. Nemendur í 3. bekk eru búin að fá tölvupóst með upplýsingum um heimastofur, kennslu í valáföngum, hvaða inngang þeir eiga að nota og hvaða umgengisreglur gilda í skólanum.

1. og 2. bekkur verður í fjarnámi vikuna 7.  - 11. september. Í fjarnáminu er mikilvægast að fylgjast MJÖG vel með öllum skilaboðum frá kennurum í Innu. Undir "Aðstoð" í Innu finnið þið gagnlegar leiðbeiningar varðandi fjarkennslustundir í Innu og gögn og upplýsingar frá náms- og starfsráðgjöfum.

Við minnum á þjónustu náms- og starfsráðgjafa sem bjóða upp á viðtöl alla virka daga. Í skólanum er einnig starfandi skólasálfræðingur sem býður uppá viðtöl tvo daga í viku.

 

Engin lýsing tilEngin lýsing tilEngin lýsing tilEngin lýsing til