- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Norsku- og sænskukennsla fyrir framhaldsskólanemendur á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Í byrjun annar er stundatafla áfanganna auglýst á heimasíðu MH.
Hægt er að velja norsku eða sænsku í stað dönsku sem Norðurlandamál í framhaldsskóla ef nemandi kann norsku eða sænsku, þ.e. ef nemandi hefur lokið grunnskólaprófi í viðkomandi máli á Íslandi eða lokið grunnskóla annars staðar á Norðurlöndum. Ekki er boðið upp á norsku- eða sænskukennslu fyrir byrjendur.
Nemendur sem mega læra norsku eða sænsku í stað skyldubundna dönskuáfanga, geta skráð sig sjálf hér um leið og þau eru komin inn í framhaldsskóla.