Vegna námsmatsdaga


Eftirfarandi póstur var sendur til nemenda miðvikudaginn 3. maí. Mikilvægt er að lesa þessar upplýsingar vel yfir: 

  • Námsmatsdagar hefjast í næstu viku og biðjum við ykkur að skoða vel klukkan hvað prófin ykkar byrja og í hvaða stofum prófið er, sjá hér
  • Ef próf er í fleiri en einni byggingu þurfið þið að athuga vel í hvaða byggingu ykkar bekkur á að vera
  • Nemendur sem hafa skráð sig í sérstofu hjá námsráðgjöfum taka prófin sín í stofu M22
  • Mikilvægt að þið kynnið ykkur vel prófareglur og prófafyrirkomulag, sjá hér
  • Athugið að ef nemandi verður uppvís að því að nota óleyfileg gögn telst nemandi fallinn á prófinu
  • Þegar þið komið í próf þá eigið þið að setja yfirhafnir og annað fremst í prófstofuna. Pennaveski mega ekki vera á borðum
  • Öll snjalltæki og/eða heyrnartól eru bönnuð. Slökkt skal á símum eða setja á flugstillingu og þeir skildir eftir hjá yfirsetufólki eða hafðir í tösku eða yfirhöfn
  • Þið eruð vinsamlegast beðin um að yfirgefa bygginguna hljóðlega um leið og þið gangið út úr prófinu svo nemendur sem eru enn þá í prófi verði ekki fyrir truflun
  • Veikindi á að tilkynna strax að morgni prófdags (hringja á skrifstofu skólans) og staðfesta síðan með læknisvottorði dagsettu samdægurs. Vottorðinu skal skila á skrifstofu þegar nemandi kemur næst í skólann eða senda í tölvupósti (helst á pdf-formi) á kvenno@kvenno.is. Sjúkrapróf verða föstudaginn 19. maí í N2 og hefjast kl. 9:00
  • Hægt er nálgast ýmis gögn og góð ráð frá náms- og starfsráðgjöfum skólans, t.d. skipulagsblöð og góðar aðferðir við tímastjórnun og próftækni undir Aðstoð í Innu og hér

Gangi ykkur sem allra best.