Tryggðu sér sæti í sjónvarpssal

 

Spurningaliðið okkar vann frækinn sigur á liði Menntaskólans á Tröllaskaga í Gettu betur í gærkvöldi. Staðan að loknum hraðaspurningum var 15 – 6, Kvennaskólanum í vil og lokatölur keppninnar urðu 25 – 8. Liðið er því komið í 8-liða úrslit og mætir sterku liði Menntaskólans í Hamrahlíð í sjónvarpssal þann 25. febrúar næstkomandi. 

Við óskum þeim Boyd, Sölku Snæbrá og Hafsteini Breka innilega til hamingju með frábæran árangur og hlökkum til næstu keppni.