Tilhlökkun í upphafi skólaárs: Mikilvægar upplýsingar um skólabyrjun

Frá vinstri: Auður (fulltrúi á skrifstofu), Björk (námstjóri), Ásdís (aðstoðarskólameistari), Guðný…
Frá vinstri: Auður (fulltrúi á skrifstofu), Björk (námstjóri), Ásdís (aðstoðarskólameistari), Guðný (fjármála- og skrifstofustjóri) og Kolfinna (skólameistari).

 


Skrifstofan er nú opin á ný eftir gott sumarleyfi. Allt fer vel af stað og við leyfum okkur að vera bjartsýn um að skólastarf verði með eðlilegum hætti þetta skólaárið!

Mikilvæg atriði í skólabyrjun fyrir nemendur og forráðamenn:  

    • Dagskrá fyrir nýnema á 1. ári verður fimmtudaginn 18. ágúst. Hún hefst kl. 9:00 í Uppsölum, húsnæði skólans við Þingholtsstræti 37 (https://www.kvenno.is/is/skolinn/skolinn/husnaedi-skolans). Dagskrá lýkur um hádegi en nánari uppýsingar verða sendar í tölvupósti. Nýnemar þurfa ekki að mæta með gögn þar sem eingöngu er um að ræða upplýsingafund og hópefli með nemendafélagi skólans.  
    • Þeir nemendur sem kosnir voru í nefndir og ráð á vegum nemendafélagsins síðastliðið vor, eiga að mæta á fræðsludagskrá eftir hádegi fimmtudaginn 18. ágúst. Nánari upplýsingar verða sendar í tölvupósti.
    • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 19. ágúst. Nemendur eru beðnir um að athuga stundaskrá reglulega á Innu þar sem stofutaflan getur breyst fyrstu vikurnar.
    • Stundaskrá og námsgagnalistar (bókalistar) verða aðgengilegir í vikulok á Innu. Nota þarf íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn. Skráðir aðstandendur nemenda yngri en 18 ára hafa aðgang með rafrænum skilríkjum.
    • Við mælum með að allir nýnemar og forráðamenn renni yfir svör við algengum spurningum í upphafi skólagöngu. Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar.  
    • Ef nemendur hafa klárað áfanga á framhaldsskólastigi (til dæmis sem valgrein í 10. bekk í samstarfi við framhaldsskóla) geta þeir óskað eftir að fá þá það nám metið til eininga hjá okkur. Nemendur sem óska eftir mati þurfa að hafa samband við Björk námstjóra með því að senda tölvupóst sem fyrst á netfangið bjorkth@kvenno.is. 
    • Kynningafundur fyrir forráðamenn nýnema verður miðvikudaginn 31. ágúst kl. 20:00. Nánari upplýsingar koma síðar.

Í lokin viljum við minna á að í upphafi skólaárs er líka gott að gott að glöggva sig á öllum helstu dagsetningum á skólaárinu og skrá hjá sér og minnum alla á að fylgjast með fréttum á facebook og instagram síðum Kvennaskólans.

Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef einhverjar spurningar vakna.
Við hlökkum til samstarfsins í vetur.