Þjónusta náms- og starfsráðgjafa

Þjónusta náms- og starfsráðgjafa helst óbreytt þrátt fyrir að engin staðkennsla fari fram í skólanum þessa vikuna. Eins og áður er hægt að panta tíma í gegnum INNU og velja um símaviðtal eða viðtal á staðnum.

Náms- og starfaráðgjafar eru á annarri hæð í Miðbæjarskóla og nemendur sem eiga erindi til þeirra ganga inn um inngang sem snýr að Lækjargötu og þaðan beint upp á aðra hæð. Spritt og grímur eru við innganginn. Einnig minnum við á að alltaf er hægt að hafa samband við ráðgjafana í gegnum tölvupóst. Nemendur sem ekki hafa aðstöðu til að stunda námið heima eru hvattir til að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa

Við hvetjum nemendur til að vera duglega að nýta sér þjónustu náms- og starfsráðgjafa á þessum skrýtnu tímum.