- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Á Tjarnardögum var haldinn góðgerðardagur þar sem 1. bekkur safnaði fyrir Kraft, 2. bekkur fyri Bergið-Headspace og 3. bekkur fyrir UNICEF. Hver bekkur valdi sér leið til að safna og má þar nefna sölu á ýmsu bakkelsi, pylsum og teikningum, dósasöfnun og happdrætti auk þess sem bekkir söfnuðu áheitum með því til dæmis að heita því að fara í ýmsar göngur. Samanlagt tókst nemendum skólans að safna rúmlega 1,7 milljón króna. Í dag fékk 1NA viðurkenningu fyrir að safna hæstu upphæðinni en þeim tókst með happdrættissölu að safna 348.000 krónum til styrktar Krafti. 1FA fékk einnig viðurkenningu fyrir frumlegheit en þau söfnuðu með því að heita því að halda bingó fyrir heimilisfólk á Hrafnistu og ganga á Esjuna. Bekkurinn safnaði 316.000 krónum til styrktar Krafti. Við erum ákaflega stolt af nemendum skólans sem lögðu sitt af mörkum til að safna fyrir góð málefni.