Skemmtilegir Tjarnardagar

Í síðustu viku var uppbrot á skólastarfi með svokölluðum Tjarnardögum. Á þriðjudeginum var valkynning þar sem nemendur kynntu sér valáfanga næsta vetrar. Sama dag söfnuðu bekkir skólans líka til góðgerðarmála með ýmsum hætti. 1. bekkur safnaði fyrir Kraft, 2. bekkur fyrir Bergið og 3. bekkur fyrir UNICEF. Frekari fréttir af söfnuninni koma á næstu dögum.

Eftir hádegi var húsþing starfsfólks. Haukur Brynjarsson, sérfræðingur hjá Netvís, fjallaði um net- og miðlanotkun Íslendinga og viðhorf til samfélagsmiðla og það umhverfi sem ber að varast auk þess sem hann veitti góð ráð varðandi notkun snjalltækja og samfélagsmiðla. Í kjölfarið voru málstofur þar sem starfsfólk gat fræðst um NotebookLM, innleiðingu á starfi hjúkrunarfræðinga í framhaldsskólum, prófakerfið Duggu og skipulag og vinnslu gagna í OneDrive. Auk þess var vinnustofa um framtíð og hlutverk skólabókasafnsins sem opnar á nýjum stað næsta vetur.

Á miðvikudeginum gátu nemendur valið úr fjölmörgum stöðvum og má sem dæmi nefna gerð armbanda fyrir Kraft, handavinnu, salsa, skák, félagsvist, flæðiteikningu, samsöng, jóga, kynningar á NotebookLM, spænskri menningu, film noir, háskólanámi í Bandaríkjunum og lýðháskólum í Danmörku.