Mikilvæg atriði í skólabyrjun

Miðbæjarlífið við aðalbyggingu skólans í ágústbyrjun
Miðbæjarlífið við aðalbyggingu skólans í ágústbyrjun

 

Mikilvæg atriði sem við biðjum nemendur og foreldra/forráðamenn að kynna sér vel:

  • Nýnemar mæta þriðjudaginn 18. ágúst kl. 9:00. Gert er ráð fyrir að dagskrá ljúki um kl. 12:00. Nýnemar þurfa ekki að mæta með skólagögn (né skólatösku) þennan dag. Mæting í matsal skólans í Uppsölum, Þingholtsstræti 37. Dagurinn hefst með stuttu ávarpi frá skólameistara og svo tekur við dagskrá með umsjónarkennara, bekkjarfélögum og fulltrúum nemendafélagsins.
  • Nemendur sem kosnir voru í nefndir og ráð á vegum nemendafélagsins síðasta vor eiga einnig að mæta á þriðjudag því þá er fræðsludagskrá eftir hádegi (kl. 13:00-16:00). Nánari upplýsingar voru sendar nemendum í tölvupósti.
  • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 19. ágúst. Nemendur eru beðnir um að athuga stundaskrá reglulega á Innu þar sem stofutaflan getur breyst fyrstu vikurnar.
  • Stundatöflur og námsgagnalista má finna í Innu frá og með næsta fimmtudegi (13. ágúst). Nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á Innu. Nemendur og skráðir forráðamenn nemenda yngri en 18 ára hafa aðgang að Innu og geta skoðað allar upplýsingar um nemandann. Nemendur eldri en 18 ára geta sjálfir veitt foreldrum/forráðamönnum aðgang að Innu, sjá leiðbeiningar neðst á þessari síðu.
  • Í upphafi skólaárs er mikilvægt að skoða helstu dagsetningar í skólastarfinu og skrá hjá sér. Einnig er gott að renna yfir svör við algengum spurningum því þar leynast ýmsar hagnýtar upplýsingar í tengslum við skólastarfið.
  • Ef nemendur hafa klárað áfanga á framhaldsskólastigi geta þeir óskað eftir að fá það nám metið til eininga hjá okkur, sjá nánari upplýsingar hér. Nemendur sem óska eftir mati þurfa að hafa samband við Björk áfangastjóra með því að senda henni tölvupóst sem fyrst.
  • Óskir um breytingar á valáföngum er hægt að biðja um í gegnum Innu eftir að stundatöflur opna. Upplýsingar um valáfanga er að finna undir aðstoð í Innu. Lokadagur töflubreytinga er föstudagurinn 21. ágúst. Athugið að þetta á ekki við um nýnema.

Við minnum nemendur og forráðamenn á að “fylgja” facebook og instagram síðum Kvennaskólans. Þar eru birtar ýmsar tilkynningar og fréttir sem tengjast skólastarfinu. Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef einhverjar spurningar vakna.

Við hlökkum til samstarfsins í vetur.