Mikilvæg atriði í skólabyrjun

Uppsalir, Þingholtsstræti 37
Uppsalir, Þingholtsstræti 37

 

  • Dagskrá fyrir nýnema á 1. ári verður föstudaginn 18. ágúst. Hún hefst kl. 9:00 í Uppsölum, húsnæði skólans við Þingholtsstræti 37. Dagurinn hefst með stuttu ávarpi og kynningu frá skólameistara og svo hitta nemendur umsjónarkennara og bekkjarfélaga. Að því loknu munu fulltrúar úr nemendafélaginu ganga með nýnemum um húsnæði skólans og stjórna hópefli. Gert er ráð fyrir að dagskrá ljúki um kl. 12:00. Nýnemar þurfa ekki að mæta með nein skólagögn (né skólatösku) þennan dag.
  • Þeir nemendur sem kosnir voru í nefndir og ráð á vegum nemendafélagsins síðastliðið vor, eiga að mæta föstudaginn 18. ágúst kl. 13:00. Þar verður fræðsludagskrá sem reiknað er með að standi til kl. 16:00. Við biðjum ykkur um að skrá ykkur hér.
  • Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 21. ágúst. Nemendur eru beðnir um að athuga stundaskrá reglulega á Innu þar sem stofutaflan getur breyst fyrstu vikurnar.
  • Stundaskrá og námsgagnalistar (bókalistar) eru á Innu. Nota þarf íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn. Skráðir aðstandendur nemenda yngri en 18 ára hafa aðgang með rafrænum skilríkjum.
  • Kynningarfundur fyrir forráðamenn nýnema verður miðvikudaginn 30. ágúst kl. 20:00. Á fundinum verður farið yfir skipulag náms og aðra þætti í starfi skólans.

  • Ef nemendur eru með óskir um breytingar á valáföngum þá er hægt að biðja um töflubreytingar í gegnum Innu. Þetta á ekki við um nýnema. Einnig er hægt að hafa samband við Björk námstjóra (bjorkth@kvenno.is) eða Ásdísi aðstoðarskólameistara (asdisa@kvenno.is). Upplýsingar um valáfanga er að finna undir aðstoð í Innu. Lokadagur töflubreytinga er miðvikudagurinn 23. ágúst.
  • Ef nemendur hafa klárað áfanga á framhaldsskólastigi geta þeir óskað eftir að fá þá það nám metið til eininga hjá okkur. Nemendur sem óska eftir mati þurfa að hafa samband við Björk námstjóra með því að senda tölvupóst sem fyrst á netfangið bjorkth@kvenno.is.

  • Í upphafi skólaárs er gott að gott að glöggva sig á öllum helstu dagsetningum á skólaárinu og skrá hjá sér
  • Við mælum með að allir nýnemar og forráðamenn renni yfir svör við algengum spurningum í upphafi skólagöngu. Þar má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar.
  • Við minnum nemendur og forráðamenn á að hægt er að “fylgja” facebook og instagram síðum Kvennaskólans. Þar má finna ýmsar tilkynningar og fréttir.

Endilega hafið samband við skrifstofu skólans ef einhverjar spurningar vakna.
Við hlökkum til samstarfsins í vetur.