Innritunargjöld vorannar

Greiðsluseðlar hafa verið gerðir fyrir nemendur Kvennaskólans í Reykjavík vegna vorannar 2022.

Gjalddagi er 27. desember 2021 en eindagi 4. janúar 2022.

Innritunargjöld vorannar eru fjórskipt:

  • Innritunargjald kr. 6.000 á önn er ákvarðað með reglugerð nr. 614 frá 7. júlí 2009.
  • Skólasjóður kr. 12.500 á önn. Skólasjóð er ráðstafað í þágu nemenda og skólastarfs, m.a. er innifalinn leikhúsmiði, vettvangsferðir, netaðgangur, tölvupóstfang og pappírskvóti til prentunar og ljósritunar. Leiklistarstarfsemi, kór og ýmis önnur verkefni eru studd eftir því sem tilefni gefst.
  • Nemendafélagsgjald kr. 5.500 á önn. Aðild að nemendafélaginu er frjáls. Nemendafélagið notar gjaldið til fjölbreyttra félagsstarfa en í því felst m.a. skóladagbók, útgáfa skólablaðs og lægra verð á samkomur. Þeir nemendur sem velja að standa utan nemendafélags sendi tölvupóst á netfangið gudnyrun@kvenno.is fyrir eindaga greiðsluseðils.
  • Foreldrafélag Kvennó, kr. 500 á önn. Stjórn félagsins er kosin á haustfundi ár hvert og mun nýta félagsgjöld í þágu forvarna og fræðslustarfs fyrir foreldra og forráðamenn. Aðild að félaginu er frjáls og þeir sem kjósa að standa utan foreldrafélags sendi tölvupóst á áðurnefnt netfang fyrir eindaga greiðsluseðils.

Greiðsluseðlar verða sýnilegir undir “Mínar síður” á vefsíðunni www.island.is en eftir sem áður birtist greiðslukrafa í heimabanka nemenda sem eru orðnir 18 ára á álagningardegi. Hjá nemendum yngri en 18 ára birtist krafan hjá foreldri/ forráðamanni sem elst er í fjölskyldunúmeri skv. Þjóðskrá.

Athygli er vakin á því að hægt er að nálgast greiðsluseðla með „greiðslukvittun“ á www.island.is, vegna umsóknar um endurgreiðslu frá stéttarfélagi.