Innritun nemenda í 1. bekk lokið

Nú er innritun í Kvennaskólann lokið og voru innritaðir 225 nemendur á 1. ár.
Alls sóttu 542 um skólavist, 240 í 1. vali og 302 í 2. vali.

Við val á nemendum er unnið eftir verklagsreglum um inntöku nýnema. Umsækjendur sem ekki fengu samþykkta skólavist geta skráð sig á biðlista hér ef pláss losnar.

Nýnemum verður sendur tölvupóstur með helstu upplýsingum en einnig má finna upplýsingar hér.

Hér eru slóðir á samfélagsmiðla skólans: Instagram og Facebook.

Bestu óskir um gleðilegt sumar!