Mikilvæg atriði vegna námsmatsdaga

 

Kæru nemendur, eftirfarandi póstur var sendur til ykkar þann 5. maí.
Mikilvægt er að lesa þetta vel yfir: 

    • Próftöflu hvers nemenda er að finna á Innu en hér má sjá yfirlit yfir öll próf og prófstofur 
    • Mikilvægt er að skoða vel klukkan hvað prófin ykkar byrja og í hvaða stofum prófið er, sjá hér
    • Ef próf er í fleiri en einni byggingu þurfið þið að athuga vel í hvaða byggingu ykkar bekkur á að vera.
    • Nemendur sem hafa skráð sig hjá námsráðgjöfum í sérstofu taka prófin sín í stofu M22.
    • Allir nemendur þurfa að lesa prófareglur og um prófafyrirkomulag hér. Athugið að ef nemandi verður uppvís að því að nota óleyfileg gögn telst nemandi fallinn á prófinu.
    • Veikindi á að tilkynna strax að morgni prófdags (hringja á skrifstofu skólans) og staðfesta síðan með læknisvottorði dagsettu samdægurs. Vottorðinu skal skila á skrifstofu þegar nemandi kemur næst í skólann. Sjúkrapróf verða fimmtudaginn 19. maí í N2 og hefjast kl. 9:00.
    • Hægt er að nálgast ýmis gögn og góð ráð frá náms- og starfsráðgjöfum skólans, t.d. skipulagsblöð og góðar aðferðir við tímastjórnun og próftækni, hér og undir aðstoð í Innu.

 Gangi ykkur vel!