Berlínarferð nemenda


Fimmtudaginn 24. mars hélt 27 manna hópur þýskunemenda í áfanganum ÞÝSK2BE05 ásamt kennurunum Björgu Helgu Sigurðardóttur og Guðrúnu Erlu Sigurðardóttur til Berlínar í náms- og menningarferð. Nemendur höfðu fyrir ferðina kynnt sér eitt og annað um Berlín og m.a. unnið kynningar um hverfi borgarinnar og þekktustu staðina. Hópurinn gisti rétt við Alexanderplatz, í hjarta gömlu Austur-Berlínar. Farið var í bæði rútu- og gönguferð með íslenskum leiðsögumanni sem býr í Berlín auk þess sem kennarar fóru með nemendur í gönguferð. Í þessum ferðum voru skoðaðir margir merkir staðir. Má þar nefna Brandenborgarhliðið, Ólympíuleikvanginn, dómkirkjuna, Gedenkstätte Berliner Mauer sem er minningarstaður um Berlínarmúrinn, Holocaust- minnismerkið, Treptower-garðinn og safn um daglegt líf í gamla Austur-Þýskalandi. Einnig heimsóttu nemendur einn merkan stað að eigin vali og fóru margir í sjónvarpsturninn og fengu þannig frábært útsýni yfir borgina enda vorum við einstaklega heppin með veður í ferðinni. Komið var heim aðfaranótt þriðjudagsins 29. mars eftir mjög vel heppnaða ferð. Framkoma nemenda í ferðinni var til fyrirmyndar og voru þeir skólanum til sóma.