Einkunnir verða birtar í Innu mánudaginn 20. desember

 

Lokaeinkunnir verða birtar í Innu mánudaginn 20. desember. Sama dag verður prófsýning í skólanum á milli kl. 9:00 og 10:00 fyrir þá sem vilja.  Athugið að það er grímuskylda í öllum byggingum skólans og fjöldatakmarkanir.

Nemendur sem þurfa að fara í endurtökupróf verða að skrá sig þennan sama dag með því að fylla út þetta form. Hér eru reglur skólans um endurtökupróf: https://www.kvenno.is/is/nam-kennsla/namsmat-og-namsframvinda/reglur-um-endurtokuprof.

Við minnum á þjónustu náms- og starfsráðgjafa skólans.