Einkunnir birtar

Lokaeinkunnir verða birtar í Innu miðvikudaginn 19. maí. Sama dag bjóðum við uppá prófsýningu í skólanum milli kl. 9:00 og 10:00.
Hér sjáið þið í hvaða stofum námsgreinarnar verða á prófsýningardaginn. 

Nemendur í 1. og 2. bekk geta skráð sig í endurtökupróf í gegnum heimasíðu skólans miðvikudaginn 19. maí. Endurtökuprófin verða í skólanum daga 25., 26. og 27. maí.
Hér eru reglur skólans um endurtökupróf: https://www.kvenno.is/is/nam-kennsla/namsmat-og-namsframvinda/reglur-um-endurtokuprof.

Minnum á þjónustu náms- og starfsráðgjafa skólans. Hildigunnur og Ína náms- og starfsráðgjafar eru til viðtals á skrifstofum sínum í Miðbæjarskólanum.