1. bekkingar velja sér áfanga

 

Nú hafa allir nemendur á 1. ári fengið kynningu á því hvernig þeir velja sér valgrein fyrir vorönn. Stórnendur kynntu fyrirkomulagið í Nýnemafræðslu þann 9. og 10. nóvember.

Valið er rafrænt og má finna bæði eyðublaðið og kynningu á valáföngum undir stikunni “Aðstoð” í Innu. Nemendur eiga að velja 1 áfanga (aðalval) og 2 áfanga til vara (varaval). Það er mikilvægt að allir skili inn valblaði líka nemendur sem ætla ekki að taka val og/eða nemendur sem ætla að láta meta einingar úr öðru námi. Valblaðinu á að skila í síðasta lagi mánudaginn 15. nóvember.

Við minnum á að hægt er hafa samband við náms-og starfsráðgjafa skólans varðandi aðstoð.

Nemendur á 2. og 3. ári hafa nú þegar valið sér áfanga (gerðu það á síðustu önn) og þurfa því ekki að spá í þessi mál.