Skapandi vinnustofur: Raddir, handverk og sjálfsmynd

 

Kvennaskólinn hlaut nýverið styrk úr Þróunarsjóði innflytjendamála fyrir verkefnið Skapandi vinnustofur: Raddir, handverk og sjálfsmynd. Alls hlutu 26 verkefni styrki fyrir árið 2026. Afhending þeirra fór fram á viðburðinum Lykill að samfélaginu sem innflytjendaráð stóð fyrir í síðustu viku. Katarzyna Rabeda, deildarstjóri íslenskubrautar, veitti styrknum viðtöku en hún hefur haft veg og vanda að verkefninu hér í Kvennaskólanum. Það voru Tomasz Chrapek, formaður innflytjendaráðs, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem afhentu styrkina.

Styrkurinn kemur sér afar vel því íslenskubrautin er í stöðugri mótun hjá þeim metnaðarfullum kennurum sem þar starfa. Námsbrautin er ætluð nemendum af erlendum uppruna á framhaldsskólaaldri þar sem megináherslan er íslenskukennsla. Leitast er við að þjálfa nemendur í íslensku máli og menningarfærni, og með því stuðla að félagslegri vellíðan nemandans. Þau fela í sér að nýja tungumálið sé lykill að íslensku samfélagi, íslensku skólastarfi, íslensku atvinnuumhverfi og brúi ólíka menningarheima.

Auglýst var eftir umsóknum um styrkina í sumar og var áhersla lögð á verkefni sem stuðla að virkri notkun íslensku í daglegu lífi, verkefni sem styðja ungt fólk sem er nýkomið til landsins og foreldra framhaldsskólanema af erlendum uppruna og verkefni sem vinna gegn fordómum, hatursorðræðu og rangfærslum í stafrænu umhverfi.

Nánar má lesa um Þróunarsjóðinn og verkefnin í frétt Vísis.