- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Síðastliðin tíu ár hefur starfsfólk Kvennaskólans komið saman á svokölluðu Húsþingi tvisvar á ári þar sem skólaþróun hvers konar er í forgrunni sem partur af endurmenntun. Oftast hefur dagskráin verið tvískipt; utanaðkomandi fræðsluerindi um mál sem eru ofarlega á baugi og málstofur þar sem starfsfólk segir frá nýjungum í skólastarfinu hjá sér.
Á húsþingi síðastliðinn föstudag fengum við góða gesti þegar Svanhildur Svavarsdóttir, sérfræðingur í skólaþjónustu framhaldsskóla hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, og Donata Honkowicz Bukowska, sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu mættu í skólann. Þær fjölluðu um áskoranir og styrkleika fjöltyngdra nemenda og árangursríkar leiðir til að styðja sem best við þennan nemendahóp í framhaldsskólanámi.
Að loknu erindi tóku við fjölbreyttar og fróðlegar málstofur í umsjón kennara. Þær fjölluðu venju samkvæmt um:
Við þökkum öllum sem tóku þátt, sérstaklega gestunum okkar og kennurum sem höfðu umsjón með málstofum.