Upphaf vorannar

Gleðilegt ár, kæru nemendur.

Endurtökupróf verða í skólanum 5. og 6. janúar. Þau hefjast kl. 8:30 og verða í stofum M23 og M27. Sjá nánar hér: https://www.kvenno.is/is/dagatal/endurtokuprofadagar-2.

Stundatöflur eru nú sýnilegar í Innu og námsgagnalistar. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 6. janúar kl. 10:40. Athugið að fylgjast þarf vel með stundatöflu meðan stofutöflur geta breyst fyrstu dagana. Við vekjum einnig athygli á því enn er verið að vinna í stundatöflum nemenda sem eiga eftir að vinna upp áfanga frá fyrri árum og hjá nemendum sem eru að koma nýir inn í skólann um áramót.

Síðasti dagur töflubreytinga er mánudagurinn 9. janúar. Nemendur geta óskað eftir breytingum á vali í gegnum Innu (töflubreytingar) og eru skýringar settar þar inn ef ósk um töflubreytingu er hafnað. Einnig er hægt að hafa samband við Björk námstjóra (bjorkth@kvenno.is) og Ásdísi aðstoðarskólameistara (asdisa@kvenno.is).

Nemendur á lokaári eru sérstaklega hvattir til að fara yfir námsferilinn sinn og athuga hvort einhverja áfanga vantar inn og hvort nemendur eru með nægilegan fjölda eininga til að ljúka stúdentsprófi.

Hlökkum til að sjá ykkur.