Ungverskir kennarar í heimsókn

 
Í síðustu viku voru 5 kennarar frá Ungverjalandi hjá okkur í starfsspeglun (job shadowing), þær Andrea Buda, Andrea Kántor, Eszter Dr. Lukács, Márta Anna Nagy og Mária Magdolna Lörinczné Bak. Um er að ræða verkefni á vegum Erasmus og heimsóttu þær meðal annars kennslustundir, kynntu sér kennsluaðferðir, skólann, íslenska skólakerfið og fleira. Þær starfa allar við Debreceni Fazekas Mihaly Secondary Grammar School í Debrecen í Ungverjalandi og var einkar ánægjulegt að fá þær í heimsókn.