Undirbúningur haustannar í fullum gangi

Skrifstofa skólans er nú opin á ný að loknu sumarleyfi. Skrifstofan er opin frá 8:00 – 16:00. Lokað er í hádeginu frá 12:00 – 12:30. Undirbúningur haustannar er í fullum gangi og upplýsingar um upphaf og fyrirkomulag kennslu, móttöku nýnema, stundatöflur og bókalista koma inn á heimasíðu þegar nær dregur.

Enn er óljóst með hvaða hætti skólahald verður núna á haustönninni en miðað við fréttir þá er allt kapp lagt á að skólar taki til starfa að nýju að loknu sumarleyfi. Skipulag skólastarfsins tekur mið af Covid-19 og rétt er að minna á að skólinn fylgir að sjálfsögðu fyrirmælum almannavarna um sóttvarnir og samkomutakmarkanir. Næstu upplýsingar um samkomutakmarkanir eru væntanlegar þann 13. ágúst og í framhaldi af því koma upplýsingar um skipulag skólastarfsins inn á heimasíðu skólans.

Einn möguleikinn er blanda af staðnámi og fjarnámi innan þeirra takmarkana sem eru í gildi á hverjum tíma. Verið er að skoða mögulegar útfærslur á slíku fyrirkomulagi. Móttaka nýnema eins og annað skólahald mun að sjálfsögðu taka mið af reglum um sóttvarnir og samkomutakmarkanir.

Nemendur eru hvattir til að fylgjast vel með fréttum á heimasíðu skólans og upplýsingafundum almannavarna.