Undanúrslit Gettu betur í kvöld

Sannkallaður nágrannaslagur verður í kvöld þegar lið Kvennaskólans mætir liði Menntaskólans í Reykjavík í undanúrslitum Gettu betur.
Keppnin hefst kl. 19.40 á RÚV. Lið Kvennaskólans skipa Ari Borg Helgason, Áróra Friðriksdóttir og Hildur Sigurbergsdóttir. Gangi ykkur sem allra best. Við hlökkum mikið til að fylgjast með.