Umhverfisfréttafólk í Kvennó

Nemendur úr Kvennaskólanum í Reykjavík náðu frábærum árangri þegar þeir lentu í 2. sæti í keppninni Umhverfisfréttafólk (Young Reporters for the Environment) í ár.

Umhverfisfréttafólk er alþjóðlegt verkefni sem gefur ungu fólki tækifæri til að kynna sér umhverfismál á gagnrýninn og skapandi hátt og miðla upplýsingum til almennings. Verkefnið er starfrækt í 44 löndum víðs vegar um heiminn og er rekið af Landvernd á Íslandi. Það er ætlað nemendum á aldrinum 12–25 ára.

Þau Þorbjörg Guðný Ásbjarnardóttir, Elísabet Jónsdóttir, Oddrún Ýr Ragnhildardóttir, Eva Óskarsdóttir, Björk Víglundsdóttir og Ingi Ragnar Ingason, nemendur í Kvennaskólanum, hlutu 2. sæti fyrir verkefni sitt í keppninni.

Nemendurnir unnu tímarit sem inniheldur bæði ljósmyndir og greinar sem tengjast þeim. Í tímaritinu fjalla þau meðal annars um:

  • samgöngur
  • gervigreind
  • innfluttar vörur

Lögð er áhersla á tengsl þessara þátta við umhverfið og eru allar ljósmyndir teknar af höfundum sjálfum.
👉 Hér má nálgast tímaritið

Umsögn dómnefndar

Í umsögn dómnefndar kemur fram að verkefnið fjalli á skýran og áhugaverðan hátt um áhrif samgangna, gervigreindar og innfluttra vara á umhverfið okkar. Greinarnar eru myndskreyttar með ljósmyndum sem höfundar tóku sjálfir og tengjast umfjöllunarefnunum vel. Dómnefnd taldi tímaritið heilsteypt og vandað, þar sem myndirnar spila lykilhlutverk í að binda efnið saman og gefa því aukið vægi. Sérstaklega var bent á að ljósmyndirnar sýni hversdagslegt nærumhverfi höfunda – og okkar allra – á nýjan hátt, þar sem fegurð er dregin fram í fyrirbærum sem margir taka lítið eftir eða velja jafnvel að horfa fram hjá, svo sem flutningagámum, skipum og bílum, með listrænum og skapandi sjónarhornum.

 

Innilega til hamingju með frábærar árangur, Þorbjörg, Elísabet, Oddrún Ýr, Eva, Björk og Ingi Ragnar!