Umferðarfræðsla

 

Við fengum góða gesti síðastliðinn miðvikudag þegar lögreglan og Samgöngustofa mættu með umferðarfræðslu fyrir alla 1. árs nema í skólanum. Þau áttu gott samtal við nemendur þar sem sérstök áhersla var lögð á:

  • Mikilvægi þess að nota öryggisbelti alltaf, hvort sem um framsæti eða aftursæti er að ræða.
  • Hættur sem fylgja hraðakstri
  • Afleiðingar aksturs undir áhrifum vímuefna.
  • Örugga notkun smáfarartækja, svo sem rafmagnshlaupahjóla.


Við hvetjum nemendur til að taka samtalið áfram við vini og fjölskyldu. Þetta er málefni sem kemur okkur öllum við, hvort sem við erum gangandi, hjólandi, keyrandi eða farþegar í ökutæki. Við þökkum lögreglunni, Samgöngustofu og forvarnarteymi Kvennaskólans fyrir frumkvæðið og góða dagskrá. Eins og sjá má á myndunum var fyrirlestrasalurinn skemmtilega skreyttur í tilefni dagsins!