Tímamót við starfslok

Á myndinni eru f.v. Hildigunnur Gunnarsdóttir, Kristín Marín Siggeirsdóttir og Kristín Hafsteinsdótt…
Á myndinni eru f.v. Hildigunnur Gunnarsdóttir, Kristín Marín Siggeirsdóttir og Kristín Hafsteinsdóttir. Á myndina vantar Auði Leifsdóttur.

 

Tímamót urðu nú í vor þegar fjórir starfsmenn Kvennaskólans létu af störfum eftir langan og farsælan starfsferil. Þetta eru þær Auður Leifsdóttir, Hildigunnur Gunnarsdóttir, Kristín Hafsteinsdóttur og Kristín Marín Siggeirsdóttur.

Það eru tímamót að láta af störfum við starfslok. Ný ævintýri og tækifæri taka við. Slík tímamót vekja gjarnan upp tilfinningar, þau geta framkallað söknuð, gleði, spennu, væntingar og fleira.

Kolfinna Jóhannesdóttir færði þeim gjöf frá skólanum og þakkaði þeim góð kynni og frábært samstarf.