Þrír afreksnemar úr Kvennaskólanum hlutu námsstyrk

Ljósmyndina tók Kristinn Ingvarsson.
Ljósmyndina tók Kristinn Ingvarsson.

 


Þrír fyrrverandi nemendur Kvennaskólans hlutu í fyrradag styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum.

Styrkþegar úr Kvennó að þessu sinni eru þau Ása Dagrún Geirsdóttir, Grímur G. Einarsson og Heiðrún Vala Hilmarsdóttir.

  • Ása Dagrún Geirsdóttir lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík í maí síðastliðnum sem semidúx skólans. Hún hlaut ýmis verðlaun við útskrift, meðal annars fyrir framúrskarandi árangur í efnafræði, stærðfræði og fyrir besta lokaverkefni skólans. Hún var í landsliðinu í líffræði í fyrra og tók þá þátt í Ólympíuleikunum á Filippseyjum og í landsliðinu í efnafræði í ár og tók þátt í Ólympíuleikunum í Úsbekistan. Ása hefur hafið nám í hagnýtri stærðfræði með fjármálastærðfræði sem sérgrein.
  • Grímur G. Einarsson útskrifaðist frá Kvennaskólanum í Reykjavík vorið 2025 sem dúx skólans og hlaut meðal annars verðlaun úr Minningarsjóði frú Þóru Melsteð og fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði. Hann náði afar góðum árangri í spurningakeppni Kvennaskólans á meðan á námi stóð. Hann hefur mikinn áhuga á stjórnmálum og vann m.a. lokaverkefni í Kvennó tengt því. Þessi áhugi Gríms hefur leitt hann í nám í stjórnmálafræði.
  • Heiðrún Vala Hilmarsdóttir lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík í vor sem dúx skólans. Við útskrift hlaut hún verðlaun úr Minningarsjóði Þóru Melsteð, viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur í félagsfræði og Menntaverðlaun Háskóla Íslands. Hún hefur verið virk í starfi ungliðahreyfingar Íslandsdeildar Amnesty International, m.a. sem formaður hreyfingarinnar, og einnig komið að starfi Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og ungmennaráðs UN Women. Heiðrún hefur hafið nám í lögfræði.


Við sendum þeim öllum okkar innilegustu heillaóskir. Meðfylgjandi er mynd af þeim saman með Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands. Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana má finna í frétt á vef Háskóla Íslands.