Stöðupróf í albönsku og ítölsku

Stöðupróf í albönsku og ítölsku verður haldið í Kvennaskólanum í Reykjavík föstudaginn 13. mars 2026 kl. 15:00.  Prófið verður í húsnæði Kvennaskólans að Fríkirkjuvegi 1.
Mest geta nemendur fengið 20 einingar metnar, 15 einingar á 1. þrepi og 5 einingar á 2. þrepi.

Skráning fer fram á heimasíðu skólans og þarf að skrá sig ekki síðar en 10. mars. Prófgjald er kr. 20.000 sem greiðist með því að leggja það inn á reikning: 0133-26-15272, kt. 650276-0359. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram á innlegginu. Vinsamlegast sendið afrit af kvittuninni á gudnyrun@kvenno.is.

Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt og auk þess verða próftakar að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.

Skráningarhlekkur: Skráning í stöðupróf í albönsku og ítölsku 13. mars 2026 – Fill in form