- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Það var sól og blíða á fyrsta skóladegi ársins í gær. Nýnemar mættu í dagskrá fyrir hádegi en eftir hádegi mættu nemendur sem sitja í nefndum og ráðum á vegum nemendafélagsins Keðjunnar. Kolfinna Jóhannesdóttir skólameistari ávarpaði nemendur og gaf nýnemum ýmis heilræði um hvernig megi fóta sig sem best í nýju skólaumhverfi. Hún lagði líka áherslu á hversu mikilvægt það er að öllum líði vel í skólanum og njóti skólagöngunnar sem best. Umsjónarkennarar á 1. ári ræddu við sína bekki um það helsta sem tengist skólastarfinu og að því loknu fóru nemendur í Keðjunni, nemendafélagi skólans, með nýnema í kynnisferð um skólann og stýrðu hópefli sem endaði á grillveislu í porti Miðbæjarskólans.
Í fræðsludagskrá fyrir nemendafélagið var síðan rætt um ýmislegt sem viðkemur stefnu skólans í hinum ýmsu málaflokkum, svo sem forvarnir, jafnréttismál og persónuvernd. Þetta er gert til að undirbúa þau sem best fyrir störf í þágu nemenda. Nefndirnar unnu svo saman í hópum þar sem þau veltu fyrir sér leiðum til að nýta fræðsluefni dagsins sem best í sínum störfum innan nemendafélagsins.
Í dag hófst kennsla fyrir alla nemendur skólans. Skólinn hefur aldrei verið fjölmennari og telur nú 718 nemendur alls. Nýnemar eru 256 talsins og aldrei hafa borist jafn margar umsóknir í skólann eins og síðasta vor. Skólinn er því þéttsetinn og biðjum við nemendur um að fylgjast vel með stundatöflunni á Innu fyrstu dagana því kennslustofur geta breyst ef hópastærðir breytast.
Að lokum viljum við minna eldri nemendur á að töflubreytingum lýkur föstudaginn 21. ágúst. Upplýsingar um valáfanga í boði skólaárið 2026-2027 eru undir aðstoð í Innu. Hægt er að óska eftir töflubreytingum í gegnum Innu.