Skemmtileg kennslustund í matvörubúð

 

Það er frekar auðvelt að læra orð eins og brauð, ostur, paprika og mjólk þegar við tölum um mat. En hvað gerist þegar við förum í alvöru út í búð? Hvað eru til dæmis bjúgu, sviðasulta, kjötbúðingur, harðfiskur, trönuber, sinnep, hakk, spergilkál, jöklasalat, rauðrófur eða blaðlaukur? 

Nemendur okkar á íslenskubraut fengu skemmtilegt verkefni í hendurnar á dögunum. Þau fóru í matvörubúð ásamt kennaranum sínum, Katarzynu Rabeda og kennaranemanum Charlotte Briem, og áttu að leita að fyrrnefndum matvörum með því að skoða hillur, umbúðir og verðmiða.

Það er mikilvægt að nota fleira en kennslubókina þegar við lærum tungumál. Vettvangsferð eins og þessi hjálpar nemendum að sjá hvernig tungumálið er samofið umhverfinu og hversu mikilvægt er að skoða og læra í alls konar aðstæðum.