Silfrið í Gettu betur

Snillingarnir okkar: Ari Borg Helgason, Áróra Friðriksdóttir og Hildur Sigurbergsdóttir.
Snillingarnir okkar: Ari Borg Helgason, Áróra Friðriksdóttir og Hildur Sigurbergsdóttir.
Spurningalukkan var ekki alveg með okkar fólki síðastliðið föstudagskvöld. Svoleiðis er það bara stundum! Árangurinn í vetur er hins vegar frábær, 2. sætið er staðreynd og sagði ekki einhver að "gott silfur væri gulli betra". Þá vakti skemmtiatriði Kvennaskólans mikla lukku en það voru þær Kristín Þorsteinsdóttir og Agla Bríet Gísladóttir sem fluttu lagið Vienna eftir Billy Joel.
 
Um leið og við þökkum liðinu okkar fyrir alla skemmtunina í vetur, þökkum við ykkur velunnurum skólans fyrir stuðninginn og óskum Verzlunarskólanum innilega til hamingju með sigurinn.