- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Nokkrir bekkir á 2. ári hafa síðustu vikur verið að kynna sér Njálssögu. Ómissandi partur af þeirri vinnu er að heimsækja sjálfar söguslóðirnar og því var lagt upp í langferð þann 5. nóvember. Fararstjórar voru íslenskukennararnir Elínrós Þorkelsdóttir og Eva María Jónsdóttir en auk þeirra voru kennaranemarnir Helga Sóley Vilhjálmsdóttir og Þóra Katrín Gunnarsdóttir með í för. Þær síðastnefndu undirbjuggu einmitt og stýrðu skemmtilegri spurningakeppni um námsefnið í rútuferðinni.
Hópurinn fór meðal annars í hressandi göngu upp á Stóra Dímon þar sem farið var með kvæðið um Gunnarshólma. Uppi á fjallinu var stórfenglegt útsýni yfir í Fljótshlíðina og þar rann upp ljós fyrir nemendum af hverju Gunnar ákvað að halda kyrru fyrir á Íslandi og hlíta ekki dómnum um útlegð. Margir nemendur nýttu svo tækifærið og ýmist renndu sér eða rúlluðu niður á sléttlendið aftur sem þótti góð skemmtun.
Keyrt var með hópinn sem leið lá inn í Fljótshlíðina sjálfa að Hlíðarenda þar sem Gunnar bjó. Venju samkvæmt var líka sungið og og fórnað hári fyrir boga Gunnars með miklum tilþrifum og hádegisverður snæddur á Sögusetrinu á Hvolsvelli. Allt gekk vel þó veðrið hefði vissulega mátt vera skemmtilegra. Það kom þó ekki að sök og hefur eflaust hjálpað hópnum að setja sig í spor sögupersóna og skilja enn betur hve lífsbaráttan hefur verið hörð fyrr á öldum.