Rafrænn aðstoðarkennari fær styrk úr Sprotasjóði

Mennta- og barnamálaráðherra ásamt styrkþegum og stjórnarformanni Sprotasjóðs. 
Mynd á vef Mennta- …
Mennta- og barnamálaráðherra ásamt styrkþegum og stjórnarformanni Sprotasjóðs.
Mynd á vef Mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Kvennaskólinn í Reykjavík hlaut styrk úr Sprotasjóði fyrir verkefnið Rafrænn aðstoðarkennari í efnafræði og nam styrkveiting 3.600.000 kr.

Markmið verkefnisins er að þróa nýstárlegt námsverkfæri sem nýtir háþróaða gervigreindartækni til að veita framhaldsskólanemendum sérsniðna aðstoð við efnafræðinám.

Í verkefninu felst að þróaður verður aðstoðarkennari í efnafræði fyrir framhaldsskólanemendur. Aðstoðarkennarinn verður nemendum til taks allan sólarhringinn og veitir persónulega aðstoð við námið. Kerfið byggir á opnu, alþjóðlega viðurkenndu námsefni og verður gefið út sem opinn hugbúnaður. Með því að veita nemendum aðgang að faglegri námsaðstoð, óháð efnahagslegri eða félagslegri stöðu, stuðlar verkefnið að auknu jafnrétti til náms. Auðvelt verður að aðlaga kerfið að mismunandi námsefni.

Verkefnisstjóri og höfundur verkefnis er Sigurður Einar Vilhelmsson kennari í efnafræði við Kvennaskólann. Auk hans taka þátt í verkefninu Elva Björt Pálsdóttir og Sesselja Gróa Pálsdóttir kennarar í efnafræði við Kvennaskólann og Þórhallur Halldórsson og Guðrún Ingibjörg Stefánsdóttir kennarar í raungreinum í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.

Alls fengu 30 skólar styrki til skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2025-2026. Styrkirnir voru afhentir af Guðmundi Inga Kristinssyni mennta- og barnamálaráðherra og Braga Þór Svavarssyni formanni stjórnar sjóðsins við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu 23. júní.

Við óskum styrkþegum innilega til hamingju.

Nánari upplýsingar um úthlutun úr Sprotasjóði 2025 má finna inn á vef Stjórnarráðsins