- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Það er hefð fyrir því að varðveita minningar um fyrrverandi skólameistara með því að mála af þeim portrett sem lifir áfram með Kvennaskólanum um ókomna tíð. Í síðustu viku var nýjasta málverkið afhjúpað en það er af Hjalta Jóni Sveinssyni sem starfaði við skólann á árunum 2016- 2022. Hjalti var áður skólameistari við Verkmenntaskólann á Akureyri og Framhaldsskólann á Laugum.
Málverkin eru nú orðin sjö talsins og eru í kennslurými í aðalbyggingu. Þau fimm sem áður stýrðu Kvennaskólanum eru frú Þóra Melsteð, fröken Ingibjörg H. Bjarnason, fröken Ragnheiður Jónsdóttir, dr. Guðrún P. Helgadóttir, Aðalsteinn Eiríksson og Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Málverkið gerði Stephen William Lárus sem er einn allra færasti portrettmálari landsins. Það var aðdáunarvert að fylgjast með hans vönduðu vinnubrögðum og vill skólinn þakka honum fyrir sérlega gott samstarf.