- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Það voru góð ráð dýr þegar gefin var út appelsínugul viðvörun fyrir peysufatadaginn. Ákveðið var með skömmum fyrirvara að halda hann hátíðlegan degi fyrr, 25. mars, og það í fallegu sólskinsveðri. Nemendur á 2. ári dönsuðu og sungu á Ingólfstorgi, í porti Kvennaskólans, fyrir íbúa og starfsfólk á Grund og loks í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið tók vel á móti hópnum í lok dags og bauð upp á hressingu sem við kunnum bestu þakkir fyrir. Margrét Helga Hjartardóttir frönskukennari hafði sem fyrr veg og vanda að öllum undirbúningi. Atli Freyr Hjaltason frá Þjóðdansafélaginu kenndi nemendum danssporin og Gísli Einarsson sá um harmonikkuleik allan daginn. Við þökkum þeim öllum kærlega fyrir þeirra framlag. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, sem ljósmyndanefnd Keðjunnar og starfsfólk skólans tóku, ríkti mikil gleði þennan fallega dag. Einnig má finna myndir ásamt umfjöllun hjá nokkrum fjölmiðlum: Vísi, Mbl.is og RÚV.