Nýnemar á ferðalagi

 

Síðastliðinn fimmtudag fóru tæplega 250 nýnemar ásamt stjórn nemendafélagsins, skólameistara, félagsmálafulltrúa og tveimur kennurum í árlega nýnemaferð í Garðalund á Akranesi. Markmið ferðarinnar var að hrista saman árganginn með skemmtidagskrá í frískandi ágústveðrinu.

Tómstundaleiðbeinendurnir Jörgen Nilsson og Anna Margrét Tómasdóttir sáu um að stýra hópeflisþrautum og stjórn nemendafélagsins sá um leikjadagskrá. Veðrið var okkur mun hliðhollara en veðurspáin hafði gert ráð fyrir og boðið var upp á pizzur í hádeginu.

Eins og sjá má á ljósmyndunum var mikið hlegið í þrautunum og virtist ganga vel að þjappa árgangnum saman. Við eigum gott í vændum með þessa nemendur í Kvennó næstu árin. Takk öll fyrir frábæra ferð.