- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Föstudaginn 25. september var vísinda- og nýsköpunarþing haldið í Grósku. Vísinda- og nýsköpunarráð stóð fyrir þinginu í samstarfi við forsætisráðuneytið, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið. Á þinginu kom saman ungt fólk og fulltrúar vísindasamfélagsins, atvinnulífsins og stjórnvalda til að ræða hvernig þekking, vísindi og nýsköpun geta stuðlað að lausnum á áskorunum framtíðarinnar. Áhersla var á að virkja ungt fólk og var því framhaldsskólanemendum boðið að taka þátt. Fulltrúar Kvennaskólans voru Ngoc Anh Bui og Bríet Aðalbjörg Agnarsdóttir. Við þökkum þeim fyrir þátttöku þeirra í þinginu. Ýmis erindi voru haldin fyrir hádegi en eftir hádegi voru nemendur í aðalhlutverki og unnu þeir í hópum að framtíðartillögum. Þeir ræddu meðal annars nám og færni framtíðar, gervigreind og tækni, nýsköpun og atvinnulíf, lífsgæði, loftslag og sjálfbæra framtíð. Nánari upplýsingar um þingið og myndir frá því er að finna hér.