- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Nemendur í frumkvöðlafræði tóku þátt í árlegri vörumessu ungra frumkvöðla í Smáralind dagana 17.-18. apríl. Hugmyndaauðgin var mikil og að þessu sinni framleiddu nemendur vítamínbætt tyggjó, margnota lok á gosdósir, tösku með kælihólfi, box undir snyrtivörur, ís úr kefir, nammimola með vítamínum og kollageni, prótínbættan brjóstsykur og þörungasnakk með chilli- og sítrónupiparbragði. Við óskum nemendum í frumkvöðlafræði innilega til hamingju með metnaðarfull verkefni og skemmtilegar afurðir.