- Kynning fyrir 10. bekkinga
- Skólinn
- Námið
- Þjónusta
- Áfangar
- English
Sextán nemendur af félagsvísindabraut Kvennaskólans tóku þátt í nemendaskiptum á vegum Erasmus+ í samstarfi við skólann VKO í Opwijk í Belgíu. Í febrúar fengum við heimsókn frá belgísku nemendunum sem dvöldu hér á landi og kynntust bæði skólastarfinu og íslensku samfélagi. Í apríl endurguldu okkar nemendur heimsóknina þegar þeir héldu ásamt kennurunum Ágústu og Þórði til Brussel og Opwijk.
Viðfangsefni nemendaskiptanna voru lýðræði, geðheilsa og þátttaka ungmenna í samfélaginu. Verkefnið gekk afar vel og var ferðin sannkallaður hápunktur annarinnar hjá öllum þátttakendum.
Á dagskrá erlendis var fjölbreytt og skemmtilegt nám: nemendur tóku þátt í hlutverkaleik í Evrópuþinginu, unnu í listasmiðju og prófuðu padel. Að sjálfsögðu gafst einnig tími til að kynnast belgískri matarmenningu.
Eftir heimkomu eru nemendur að taka saman helsta ávinning af þátttöku sinni, og hlökkum við til að deila því efni með ykkur á næstunni.
Nú styttist í útskrift þessa hóps og er ljóst að þátttakan í verkefninu verður dýrmætt veganesti út í lífið, samhliða stúdentsprófi þeirra.