Nemendaskiptaverkefni á vegum Erasmus+

Í síðastliðinni viku heimsóttu okkur nemendur frá Belgíu í tengslum við nemendaskipti á vegum Erasmus+. Til okkar komu tuttugu nemendur og tveir kennarar. Það var stútfull dagskrá alla dagana en við eyddum mörgum góðum stundum með hópnum og héldum ýmsar vinnustofur. Áhersla verkefnisins er á geðheilbrigði ungmenna og lýðræði og hvernig megi tvinna þetta saman. Heimsóknin gekk framar vonum og ekki skemmdi góða veðrið fyrir. Á mánudeginum fór hópurinn gullna hringinn en hina dagana var fræðsludagskrá fram eftir degi en þar bar hæst heimsókn hópsins á Alþingi og kveðjupartý á fimmtudagskvöldið.

Í apríl heimsækir íslenski hópurinn Belgíu en nemendurnir koma úr skólanum VKO í Opwijk sem er rétt fyrir utan Brussel. Mikil tilhlökkun ríkir meðal nemenda og kennara og við efumst ekki um að sú ferð fari jafn vel og koma þeirra til okkar í Kvennaskólann.