Námsmatsdagar/prófadagar

Kæru nemendur

Námsmatsdagar hefjast í næstu viku og biðjum við ykkur að skoða vel klukkan hvað prófin ykkar byrja. Búið er að raða nemendum fyrir fram í prófstofur og mikilvægt að nemandi mæti í rétta stofu. Nemendur sjá undir "aðstoð" í Innu nafnalista fyrir hvert próf og í hvaða stofu hver á einn á að mæta. Listi er settur undir "aðstoð" í Innu ca. tveimur dögum fyrir próf. Nemendur sem hafa skráð sig hjá námsráðgjöfum í sérstofu taka prófin sín í stofu M17.

Próftöfluna er að finna bæði á Innu og á heimasíðu skólans, sjá hér

Mikilvægt er að þið kynnið ykkur vel prófareglur og prófafyrirkomulag, sjá hér:

Athugið að ef nemandi verður uppvís að því að nota óleyfileg gögn eða tækni, veita eða þiggja hjálp frá öðrum verður úrlausn hans ekki metin og telst hann fallinn í viðkomandi prófi.

Þegar þið komið í próf þá eigið þið að setja yfirhafnir og annað fremst í prófstofuna. Pennaveski mega ekki vera á borðum. Öll snjalltæki og/eða heyrnartól eru bönnuð. Slökkt skal á símum eða setja á flugstillingu og þeir skildir eftir hjá yfirsetufólki (í símakassa) eða hafðir í tösku eða yfirhöfn. Þið eruð vinsamlegast beðin um að yfirgefa bygginguna hljóðlega um leið og þið gangið út úr prófinu svo nemendur sem eru enn þá í prófi verði ekki fyrir truflun.

Veikindi á að tilkynna strax að morgni prófdags með símtali á skrifstofu skólans (s. 5807600). Vegna álags á heilsugæslu nægir að foreldri/forráðamaður staðfesti veikindi samdægurs (hringja áður en próf hefst). Sama gildir um nemendur sem eru 18 ára og eldri. Ef veikindi eru ekki staðfest af foreldri/forráðamanni þarf að leggja fram læknisvottorð dagsett sama dag. Vottorðum skal skila rafrænt á netfangið kvennaskolinn@kvenno.is.

Sjúkrapróf verða mánudaginn 18. maí í stofu N2 og hefjast kl. 9:00.

Hægt er nálgast ýmis gögn og góð ráð frá náms- og starfsráðgjöfum skólans, t.d. skipulagsblöð, góðar aðferðir við tímastjórnun og próftækni, sjá hér: https://www.kvenno.is/is/foreldrar/stodthjonusta/nams-og-starfsradgjof og undir aðstoð í Innu.

Gangi ykkur sem allra best.